Um Guðjón

10 ára reynsla.
Ekkert bull.

Ég er menntaður ÍAK einkaþjálfari og styrktarþjálfari og hef eytt meira en áratug í að aðstoða fjölda viðskiptavina að bæta heilsu sína á sjálfbæran hátt.

Guðjón Ingi

Nálgunin

Eftir útskrift úr ÍAK árið 2013 hóf ég störf í einkaþjálfun. Árið 2018 stofnaði ég Train Station þar sem ég byggði upp öflugt samfélag þar sem fólk af ólíkum bakgrunni kom saman með eitt markmið: að vaxa og dafna í gegnum hreyfingu, heilbrigðan lífsstíl og jákvæða sjálfsmynd.

Íþróttir hafa verið stór hluti af mínu lífi frá unga aldri og spilaði ég handbolta með Haukum til 32 ára aldurs. Fyrir mér snýst góð þjálfun ekki aðeins um líkamsrækt – hún snýst um að byggja upp sjálfstraust, venjur og lífsstíl sem skilar árangri til lengri tíma.

Menntun og Vottun

ÍAK Einkaþjálfari og Styrktarþjálfari síðan 2013. Uppfylli stífar kröfur um fagleg vinnubrögð og aðhald.