Trainer.is fjarþjálfun
treystu ferlinu.
Persónuleg fjarþjálfun sem byggir upp styrk, úthald og sjálfstraust — með raunhæfu plani og eftirfylgni sem passar lífinu þínu.
300+ viðskiptavinir · 10+ ára reynsla · ÍAK vottaður
Stuðningur sem fylgir þér eftir
ÍAK Einkaþjálfari · Styrktarþjálfari · 10+ ára reynsla
Fyrir mér snýst góð þjálfun um meira en æfingar. Hún snýst um að byggja upp sjálfstraust, rútínu og lífsstíl sem skilar árangri og betri líðan til lengri tíma.
Ég heiti Guðjón Ingi Sigurðsson og er eigandi og þjálfarinn á bakvið Trainer.is. Ég er ÍAK-menntaður einkaþjálfari og styrktarþjálfari og hef starfað í þjálfun frá árinu 2013. Árin 2018–2025 byggði ég upp Train Station, þar sem ég vann með fólki af ólíkum bakgrunni að því að styrkjast, byggja upp góðar venjur og líða betur.
Hjá mér færðu ekki sniðmát.
Þú færð manneskju sem þekkir þig.
Hvað felst í fjarþjálfun?
Ég skrifa plan sem passar þér. Ekki perfect plan-ið. Ef þú æfir heima, á kvöldin, eða ert nýkomin/n aftur eftir hlé — áætlunin byrjar þar sem þú ert.
Ég tek eftir þegar þú hverfur. Ég hringi ekki til að skamma þig — ég hringi til að skilja hvað er að gerast og breyta því sem þarf. Aðhald er ekki skylda. Það er athygli.
Engar strangar reglur. Engin forbidden food. Við skoðum það sem þú ert nú þegar að borða og finnum leiðir sem virka — í þínu lífi, ekki hugsjónalífi.
Þjónustan
Allar áskriftir byggja á Trainer appinu — æfingar með myndböndum, samskipti við þjálfara, og þitt prógramm alltaf við höndina. Munurinn liggur í dýpt persónulegrar þjálfunar.
Allar áskriftir innifela
Þín æfingaáætlun. Vönduð æfingamyndbönd með útskýringum. Matardagbók. Samskipti við þjálfara. Allt í einum stað, alltaf með þér.
Trainer App
4.900kr/mán
Hentar þér ef: þú vilt gott prógramm og strúktúr í ræktinni — en getur unnið sjálfstætt án djúprar þjálfunar.
Fjarþjálfun
19.900kr/mán
Hentar þér ef: þú hefur prófað app eða sjálfsaga og vantar persónulegt samband við þjálfara sem aðlagar planið að þínu lífi.
Mest Árangur
Trainer Premium
Verð eftir samtal
Hentar þér ef: þú meinar alvöru, vilt dýpri breytingar og holistic nálgun á þjálfun, næringu og lífsstíl — með þjálfara sem er með þér alla leið.
Trainer appið er innifalið í öllum áskriftum · Enginn binditími á App og Fjarþjálfun
Umsagnir
Byrjaði aftur eftir áralangt hlé
Ég hafði prófað þrisvar að byrja aftur sjálf og hætti alltaf eftir mánuð. Með Guðjóni er ég búin að vera samkvæm í 8 mánuði — af því að einhver tekur eftir þegar ég mæti ekki.
Fjarþjálfun utan höfuðborgarsvæðis
Ég bý á landsbyggðinni og hef engan aðgang að þjálfara. Þetta er ekki app — þetta er raunverulegt samband. Guðjón aðlagar þegar lífið kemur í veg og ég þarf aldrei að útskýra mig.
Tilbúin/n?
treystu ferlinu.
Við spjöllum saman, förum yfir hvar þú ert, og finnum hvaða áskrift passar þér. Engin skuldbinding — bara samtal.
Takmarkaður fjöldi í Trainer Premium — 3 laus pláss
Enginn binditími á App og Fjarþjálfun.