Trainer
Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi viðskiptaskilmála. Það fyrirbyggir misskilning og stuðlar að góðum samskiptum. Þessir skilmálar gilda um sölu á fjarþjálfun, þjálfunaráskriftum og annarri þjónustu frá Trainer.is.
Þar sem um ræðir rafræna þjónustu er ekki möguleiki á að fara fram á endurgreiðslu á þjónustu, einungis er hægt að segja upp áskrift og tekur þá uppsagnartímabil við.
Verð á þjónustu sem Trainer.is býður upp á eru öll í íslenskum krónum. Trainer áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Repeat sér um utanumhald á áskrift, en allar greiðslur fara fram í öruggu umhverfi. Allir samningar eru ótímabundnir samningar nema annað sé tekið fram og eru greiddir fyrirfram. Tímabundin fjarþjálfun áskrift (t.d. 3, 6 eða 12 mánaða) er ekki hægt að segja upp á meðan gildistíma stendur.
Ótímabundinni þjálfunar áskrift skal segja upp fyrir 20. hvers mánaðar og rennur þá út um mánaðamótin. Uppsögn skal berast skriflega á netfangið trainer@trainer.is. Það er á ábyrgð kaupanda að seljandi staðfesti uppsögnina. Ekki er hægt að krefjast endurgreiðslu eftir á ef uppsögn barst seint.
Við pöntun eru fylltar út viðeigandi upplýsingar og samþykkir kaupandi þá þessa skilmála ásamt persónuverndarstefnu okkar. Trainer.is ábyrgist að farið sé með allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjálfunaráskrift er eingöngu fyrir einn einstakling, ekki er leyfilegt að samnýta aðganginn. Allt efni á vegum Trainer.is (t.d. í appinu) er varið af höfundarétti og má ekki dreifa.
Eigandi Trainer.is er Factus ehf (Kt: 521112-0850).
Netfang: trainer@trainer.is